Fasvik – forsíða

← Öll þjónusta

Löggiltur rafverktaki í Hafnarfirði

Uppsetning hleðslustöðva

Fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki. Við metum töfluna og heimtaugina, setjum stöðina upp og mælum hana áður en hún er tekin í notkun.

Senda fyrirspurn Algengar spurningar
Rafbíll í hleðslu við veggstöð

Hvað þarf heima hjá þér?

Svaraðu 7 spurningum og sjáðu líklega stærð stöðvar, hvað er athugað í töflunni og hvað er gott að hafa við höndina.

Svaraðu 7 spurningum

Af hverju skiptir uppsetningin máli?

Hleðslustöð tekur mikinn straum tímunum saman, oft á hverri nóttu. Taflan, strengurinn og varnarbúnaðurinn þurfa að vera valin fyrir það álag.

Rétt varin

Sér grein með yfirstraumsvörn og lekaliða sem hentar stöðinni.

Heimtaug og tafla

Við athugum hvort heimtaugin og taflan ráði við stöðina ofan á aðra notkun.

Álagsstýring

Stöðin dregur úr hleðslu þegar önnur notkun er mikil, svo aðalvörn leysi ekki út.

Mælt fyrir notkun

Stöðin og lögnin að henni eru mældar áður en þær eru teknar í notkun.

Fyrir hverja?

Grunnurinn er sá sami alls staðar: sér grein, réttur varnarbúnaður og mæling í lokin. Það sem er ólíkt er stærðin og hvernig aflinu er skipt.

Heimili

  • 1 fasi eða 3 fasar: fer eftir heimtauginni, stöðinni og bílnum.
  • Í töflunni: sér grein með yfirstraumsvörn og lekaliða, og pláss fyrir hvort tveggja.
  • Lekaliði: gerð B, eða gerð A-EV sem nemur sjálf 6 mA jafnstraum. Gerð A dugar þegar sú vörn er innbyggð í stöðina.
  • Álagsstýring: ef heimtaugin er lítil eða önnur notkun mikil.

Húsfélög og fjölbýli

  • Sameiginleg lausn: ein heildarlausn fyrir bílastæðið í stað þess að hver íbúð leggi sína lögn.
  • Álagsstýring: skiptir tiltæku afli á milli stöðva.
  • Mæling og kostnaður: mæling á hverri stöð gerir kleift að skipta kostnaði eftir notkun. Húsfélagið ákveður hvernig skipt er.
  • Seinni stöðvar: lagnaleiðin gerð þannig að bæta megi við stöðvum síðar.

Fyrirtæki

  • Hleðsla fyrir starfsfólk, gesti eða bíla fyrirtækisins.
  • Álagsstýring sem tekur tillit til annarrar notkunar í húsinu.
  • Fjöldi stöðva og staðsetning ákveðin með ykkur.
  • Mæling á notkun eftir stöð þar sem þess er þörf.

Hvað er gert?

Fyrst er metið hvað húsið ræður við. Síðan er stöðin sett upp, stillt og merkt.

Áður en sett er upp

  • Tafla og heimtaug: stærð aðalvarnar, laust pláss og ástand töflunnar.
  • Álag: hvað annað er í notkun, til dæmis varmadæla eða spanhelluborð.
  • Lagnaleið: hvar stöðin á að vera og hvaða leið strengurinn fer.
  • Varnarbúnaður: strengur, yfirstraumsvörn og lekaliði valin eftir stöðinni.

Uppsetningin

  • Lögn og festing: strengur lagður og stöðin fest.
  • Í töflunni: ný grein með yfirstraumsvörn og lekaliða.
  • Stillingar: hámarksstraumur, fasar og álagsstýring.
  • Merkingar: stöðin merkt með grein og töflu.

Ef taflan ræður ekki við stöðina eða er komin til ára sinna segjum við það strax. Sjá töfluskipti og endurnýjun raflagna.

Úttekt eftir uppsetningu

Áður en stöðin er tekin í notkun er hún mæld, fyrst án spennu og svo með spennu.

Mælt fyrir notkun

  • Einangrunarviðnám
  • Samfelldni varnarleiðara
  • Hringrásarviðnám (Zs)
  • Útleysitími og útleysistraumur lekaliða
  • Prófun í gegnum stöðina með prófunarmillistykki sem líkir eftir rafbíl

Skrifleg úttekt

Þarftu skriflega staðfestingu, til dæmis fyrir húsfélag eða tryggingar? Úttekt á hleðslustöðvum skilar PDF-skýrslu með niðurstöðu, mælingum og myndum.

Úttektin á líka við um stöðvar sem aðrir hafa sett upp.

Nánar um úttektina →

Ferlið skref fyrir skref

  1. Fyrirspurn

    Þú sendir fyrirspurn. Myndir af töflunni og staðnum þar sem stöðin á að vera hjálpa.

  2. Skoðun og tillaga

    Við skoðum töflu og heimtaug og segjum hvað þarf, líka ef taflan þarf að breytast fyrst.

  3. Uppsetning

    Strengur lagður, ný grein í töflu, stöðin fest, tengd og stillt.

  4. Mæling og afhending

    Stöðin er mæld áður en hún er tekin í notkun og við förum yfir stillingarnar með þér.

Gott að hafa við höndina: gerð stöðvarinnar ef hún er þegar keypt, og myndir af töflunni.

Algengar spurningar

Þarf ég 3 fasa stöð?

Ekki endilega. Það fer eftir heimtauginni og bílnum. Sumir bílar hlaða aðeins á einum fasa og nýta þá ekki 3 fasa stöð að fullu. Við skoðum heimtaugina og töfluna og ráðleggjum út frá því.

Þarf að skipta um töflu?

Ekki alltaf. Ef taflan er í lagi og pláss er í henni dugar oft að bæta við grein. Í eldri töflum getur þurft að endurnýja fyrst. Sjá töfluskipti og endurnýjun raflagna.

Hvaða lekaliða þarf fyrir hleðslustöð?

Lekaliða af gerð B, eða gerð A-EV sem nemur sjálf 6 mA jafnstraum. Ef stöðin er með innbyggða 6 mA jafnstraumsvörn dugar lekaliði af gerð A. Við veljum eftir stöðinni.

Hvað er álagsstýring?

Búnaður sem fylgist með heildarnotkun og lækkar hleðslustrauminn þegar annað er í notkun. Þannig leysir aðalvörnin ekki út og oft þarf ekki að stækka heimtaugina. Í fjölbýli skiptir hún aflinu á milli stöðva.

Hvernig er kostnaði skipt í fjölbýli?

Með mælingu á hverri stöð er hægt að skipta kostnaði eftir notkun hvers og eins. Hvaða leið er farin ákveður húsfélagið. Við setjum upp búnaðinn sem til þarf.

Er stöðin mæld eftir uppsetningu?

Já. Hún er mæld áður en hún er tekin í notkun. Ef þú þarft skriflega skýrslu er hún gerð eins og í úttekt á hleðslustöðvum.

Tengd þjónusta

Úttekt á hleðslustöðvum

Sjónskoðun og mælingar á hleðslustöð og lögn að henni, með PDF-skýrslu um niðurstöður.

Nánar →

Töfluskipti og endurnýjun raflagna

Eldri töflur og lagnir skoðaðar, mældar og endurnýjaðar, með lekaliðum og jarðtengingu í lagi.

Nánar →

Brunaþéttingar

Gegnumtök raflagna milli brunahólfa þétt með vottuðum kerfum og skráð með myndum.

Nánar →

Lokaúttektir

Skoðun og mælingar á nýjum og breyttum neysluveitum áður en þær eru teknar í notkun, með skýrslu.

Nánar →

Raflagnahönnun og rásateikningar

Raflagnateikningar, töfluteikningar og greinaskýringar fyrir nýbyggingar og breytingar.

Nánar →

Iðntölvur og stýringar

Forritun og uppsetning iðnstýringa (PLC) fyrir dælur, loftræsingu, lýsingu og vélbúnað, með skjölun.

Nánar →

Pantaðu uppsetningu

Segðu okkur hvar stöðin á að vera, hvort hún er þegar keypt og hvenær hentar. Myndir af töflunni hjálpa.

Sími
Hilmir 779 6121
Sófus 778 7712
Karl 773 8818

Fasvik ehf. · Hafnarfjörður · allt höfuðborgarsvæðið