Úttekt á hleðslustöðvum
Mælingar og skýrsla fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Við skoðum og mælum hleðslustöðina og lögnina að henni og skilum skriflegri skýrslu með niðurstöðum.

Af hverju úttekt?
Hleðslustöð tekur mikinn straum tímunum saman. Mælingar sýna að hún er rétt tengd og rétt varin, og skýrslan sýnir það skriflega ef spurt er um ábyrgð eða tryggingar.
Öryggi
Mælingar staðfesta að stöðin og lögnin að henni valdi ekki hættu.
Lekaliðavörn
Við prófum að lekastraumsrofinn leysi út á réttum tíma og við réttan straum.
Jarðtenging
Við mælum að varnarleiðarinn sé heill alla leið og að viðnámið sé innan marka.
Ábyrgð og tryggingar
Skýrsla með mælingum sýnir skriflega að stöðin var prófuð.
Fyrir hverja?
Úttektin á við alls staðar þar sem hleðslustöð er tengd við raflögn. Ein stöð eða fleiri, ný eða eldri: úttektin er unnin á sama hátt.
Húsfélög
Sameiginleg stöð eða margar stöðvar í bílastæði eða í lóð. Húsfélagið fær skýr gögn í hendur.
Fyrirtæki
Hleðsla fyrir starfsfólk, gesti eða bíla fyrirtækisins. Ástand stöðvanna er skjalfest.
Einstaklingar
Heimahleðsla við hús eða í bílskúr. Fyrir nýja stöð eða eldri uppsetningu sem þú vilt fá staðfesta.
Hvað er skoðað og mælt?
Fyrst skoðum við allt með berum augum, áður en nokkuð er tengt. Síðan mælum við, fyrst án spennu og svo með spennu.
Skoðað
- Sjónskoðun: festing, hæð og lagnaleið, hleðslusnúra og tengi óskemmd, IP-flokkun og merkingar, stöð merkt með grein og töflu.
- Tenging: átak á klemmum í töflu og stöð.
- Strengur og leiðarar: stillingar stöðvar, svo sem hámarksstraumur, fasar og álagsstýring.
- Varnarbúnaður: gerð lekastraumsrofa, straumþol strengs og rofgeta, merkingar í töflu og á einlínumynd, neyðarrofi ef hann er til staðar.
Mælt
- Einangrunarviðnám: er einangrun leiðaranna heil og án leka?
- Samfelldni varnarleiðara: er jarðleiðarinn heill alla leið að stöðinni?
- Hringrásarviðnám (Zs): nógu lágt til að varnarbúnaður leysi út ef bilun verður.
- Lekaliðar: útleysitími og útleysistraumur lekastraumsrofans.
- Spenna og fasaröð: á hverjum fasa, líka undir álagi.
- Prófun í gegnum stöðina: með prófunarmillistykki sem líkir eftir rafbíl prófum við stöðina eins og hún er notuð.
Mælitæki: Fluke 1673 FC fjölnotaprófari fyrir raflagnir (kvarðaður) og Fluke FEV300 prófunarmillistykki fyrir hleðslustöðvar. Klemmur eru hertar með kvörðuðu átaksverkfæri. Vísað er í ÍST HB 200:2024 (kafli 722 um hleðslu rafbíla) og reglugerð um raforkuvirki nr. 678/2009.
Skýrslan sem þú færð
Þú færð skýrslu á PDF-formi með niðurstöðu á fyrstu síðu og öllu sem stendur að baki henni.
Í skýrslunni
- Niðurstaða á fyrstu síðu
- Mælingar með gildi, viðmiði og mati
- Sjónskoðun, atriði fyrir atriði
- Athugasemdir í þremur flokkum
- Mælitæki með raðnúmeri og kvörðun
- Ljósmyndir með myndatexta
- Gildi fyrir eyðublað HMS (3.105)
- Undirskrift löggilts rafverktaka
Ef eitthvað finnst
Það er skráð og flokkað samkvæmt ÖH-01 frá HMS. Ef ekkert finnst stendur „án athugasemda“.
- 1. flokkur, lagfæring: lagfæring án ákveðinna tímamarka.
- 2. flokkur, frestur: lagfæra innan þriggja mánaða eða leggja fram úrbótaáætlun.
- 3. flokkur, alvarleg: tafarlausar úrbætur. Stöðin er ekki tekin í notkun fyrr en lagað er og mælt aftur.
Eftir úrbætur endurtökum við þær mælingar sem málið varðar og uppfærum skýrsluna.
Ferlið skref fyrir skref
-
Bókun
Þú hefur samband. Við ræðum stöðina, lögnina og hvenær hentar.
-
Úttekt á staðnum
Greinin er rofin og læst. Við skoðum og mælum, fyrst án spennu og svo með spennu.
-
Skýrsla
Þú færð skýrslu á PDF með niðurstöðum, mælingum og myndum.
-
Lagfæringar, ef þarf
Ef eitthvað stenst ekki segjum við hvað þarf að laga og mælum aftur eftir úrbætur.
Gott að hafa við höndina: einlínumynd eða upplýsingar um töfluna og handbækur stöðvarinnar.
Vantar stöð eða nýja grein í töflu? Sjá uppsetningu hleðslustöðva og töfluskipti og endurnýjun raflagna.
Stöðvar sem við þekkjum
Við höfum uppsetningarupplýsingar algengra gerða, bæði fyrir 1 fasa og 3 fasa stöðvar.
- Tesla Wall Connector, Gen 2 og Gen 3
- Easee Home og Charge
- Zaptec Go og Pro
- Teltonika TeltoCharge, tengill eða föst snúra
- Wallbox Pulsar Plus
- Charge Amps Halo
- ABB Terra AC
- Almennar stöðvar 1 fasi eða 3 fasar, aðrar gerðir
Margar stöðvar eru með innbyggða 6 mA jafnstraumsvörn. Hún ræður því hvaða lekastraumsrofi þarf, og við tökum tillit til þess. Heiti framleiðenda eru nefnd til að lýsa þeim stöðvum sem við þekkjum.
Tengd þjónusta
Uppsetning hleðslustöðva
Heimili, húsfélög og fyrirtæki: tafla, lekaliði, álagsstýring og mæling í lokin.
Nánar →Töfluskipti og endurnýjun raflagna
Eldri töflur og lagnir skoðaðar, mældar og endurnýjaðar, með lekaliðum og jarðtengingu í lagi.
Nánar →Brunaþéttingar
Gegnumtök raflagna milli brunahólfa þétt með vottuðum kerfum og skráð með myndum.
Nánar →Lokaúttektir
Skoðun og mælingar á nýjum og breyttum neysluveitum áður en þær eru teknar í notkun, með skýrslu.
Nánar →Raflagnahönnun og rásateikningar
Raflagnateikningar, töfluteikningar og greinaskýringar fyrir nýbyggingar og breytingar.
Nánar →Iðntölvur og stýringar
Forritun og uppsetning iðnstýringa (PLC) fyrir dælur, loftræsingu, lýsingu og vélbúnað, með skjölun.
Nánar →Pantaðu úttekt
Segðu okkur hvar stöðin er, hver gerðin er og hvenær hentar. Myndir af töflu og stöð hjálpa.
Fasvik ehf. · Hafnarfjörður · allt höfuðborgarsvæðið