Frá hönnun til stýringar
Við tökum að okkur verkefni af öllum stærðum, hvort sem um er að ræða hönnun nýrra kerfa, löggiltar úttektir eða almenna rafmagnsvinnu.

Sérhæfð þjónusta
Raflagnahönnun
Skipulag og hönnun raflagna fyrir framkvæmdir, nýbyggingar og breytingar á eldra húsnæði.
Nánar um raflagnahönnun →Rásateikningar
Fagleg teiknivinna fyrir töflur og kerfi, skjölun sem heldur utan um lagnir og stýringar.
Nánar um teikningar →Iðntölvuforritun (PLC)
Forritun og uppsetning iðnstýringa fyrir framleiðslu, vélbúnað og sjálfvirkni.
Nánar um stýringar →Úttektir og brunaþéttingar
Úttektir og lokaskoðanir
Úttektarmælingar og lokaskoðanir á neysluveitum í samræmi við gildandi reglugerðir.
Nánar um lokaúttektir →Úttekt á hleðslustöðvum
Sjónskoðun og mælingar á hleðslustöð og lögn að henni fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga, með PDF-skýrslu um niðurstöður.
Nánar um úttektina →Brunaþéttingar
Brunaþéttingar við gegnumtökur strengja og lagna, með þéttikerfum sem hafa evrópskt tæknimat (ETA) og samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Hver þétting er skráð með myndum fyrir og eftir frágang.
Nánar um brunaþéttingar →Almenn þjónusta
Nýlagnir
Raflagnir í ný hús, viðbyggingar og endurnýjun eldra húsnæðis.
Endurnýjun og viðgerðir
Uppfærsla á eldri lögnum, viðhald og bilanaleit.
Rafmagnsþjónusta
Fyrir íbúðar-, atvinnu- og iðnaðarhúsnæði.
Þarftu eitthvað sem er ekki á listanum? Hafðu samband, við finnum lausn.
Hafa samband