Iðntölvuforritun og stýringar
Forritun og uppsetning iðnstýringa (PLC) fyrir fyrirtæki, iðnað og húsfélög. Ný stýring eða lagfæring á eldri, og skjöl sem fylgja kerfinu.

Hvað gerir iðnstýring?
Iðntölva (PLC) les merki frá rofum, nemum og mælum og stýrir búnaði eftir forriti. Hún ræsir dælur og viftur, kveikir ljós og heldur hita, þrýstingi eða álagi innan marka. Hún er í stjórnskáp ásamt varnarbúnaði, liðum og tengiklemmum.
Dælur
Ræsing og stöðvun eftir þrýstingi, hæð eða tíma, víxlun milli dælna og viðvaranir.
Loftræsing
Viftur og lokar stýrð eftir tíma, hita eða notkun.
Lýsing
Lýsing stýrð eftir tíma, birtu eða hreyfingu, til dæmis í sameign og bílageymslu.
Álagsstýring
Notkun takmörkuð eða færð til svo heildarálagið haldist innan þess sem heimtaugin ræður við.
Fyrir hverja?
Stærðin er ólík, en verkið er það sama: skilja hvað kerfið á að gera, forrita það, prófa og skjala.
Iðnaður og framleiðsla
- Vélbúnaður: mótorar, lokar, nemar og færibönd.
- Breytingar á ferli: ný skref eða skilyrði í forriti sem fyrir er.
- Viðvaranir: stöðuljós og boð svo bilun sjáist strax.
Fyrirtæki og atvinnuhúsnæði
- Loftræsing og hiti: stýrt eftir tíma og notkun.
- Lýsing: eftir tíma, birtu eða hreyfingu.
- Álag: stýring sem tekur tillit til annarrar notkunar í húsinu.
Húsfélög
- Sameign: dælur, loftræsing og lýsing í sameign og bílageymslu.
- Hleðslustöðvar: álagsstýring þegar stöðvum er bætt við.
- Skjöl: fylgja húsinu, svo næsti rafvirki skilji kerfið.
Ný stýring eða lagfæring á eldri?
Hvort tveggja byrjar á því að skilja hvað kerfið á að gera og hvað gerist ef eitthvað bilar.
Ný stýring
- Þarfagreining: hvað kerfið á að gera, við hvaða aðstæður og hvernig það bregst við bilun.
- Stjórnskápur: iðntölva, varnarbúnaður, liðar og tengiklemmur, allt merkt.
- Forritun og prófun: forritið prófað með búnaðinum áður en kerfið er tekið í notkun.
- Kennsla: farið yfir kerfið með þeim sem nota það.
Lagfæring á eldri stýringu
- Bilanaleit: hvað gerist, hvenær, og hvaða merki koma inn.
- Forritið sem fyrir er: afritað áður en nokkru er breytt, ef hægt er að lesa það út.
- Breytingar: ný skilyrði, tímar eða búnaður bætt við.
- Eldri búnaður: ef iðntölvan eða íhlutir eru úreltir segjum við það og ræðum endurnýjun.
Er forritið ekki til, eða ekki hægt að lesa það út? Þá er virkni kerfisins skoðuð og skráð á staðnum áður en nokkru er breytt.
Skjölun og afhending
Stýring sem enginn skilur er erfið þegar hún bilar. Þess vegna fylgja henni skjöl.
Það sem þú færð
- Forritið, vistað og afhent
- Rásateikningar af stjórnskápnum
- Lista yfir inn- og útmerki (I/O)
- Lýsingu á virkni: hvað kerfið gerir og hvenær
- Merkingar í skáp og á búnaði
Af hverju skjölun?
Með forritinu, teikningunum og lýsingunni getur næsti rafvirki, eða við, fundið bilun og breytt kerfinu án þess að byrja frá grunni.
Rásateikningarnar eru sama teiknivinna og í raflagnahönnun.
Nánar um teikningar →Ferlið skref fyrir skref
-
Fyrirspurn
Þú segir okkur hvað kerfið á að gera, eða hvað er að. Myndir af stjórnskápnum og búnaðinum hjálpa.
-
Skoðun og tillaga
Við skoðum búnaðinn og það sem fyrir er og leggjum til lausn: nýja stýringu, breytingu eða viðgerð.
-
Smíði og forritun
Skápur settur upp eða honum breytt, forritað og tengt.
-
Prófun og afhending
Kerfið prófað með búnaðinum, farið yfir það með þér og skjölin afhent.
Gott að hafa við höndina: teikningar af stjórnskápnum og upplýsingar um búnaðinn (iðntölvu, dælur, viftur), ef þær eru til.
Algengar spurningar
Hvað er iðntölva (PLC)?
Tölva sem er gerð fyrir stjórnskápa. Hún les merki frá rofum og nemum og stýrir búnaði eftir forriti, og þolir aðstæður í iðnaði og tæknirýmum.
Getið þið breytt stýringu sem aðrir settu upp?
Oft já. Fyrst þarf að komast að forritinu og teikningunum, ef þau eru til. Við skoðum kerfið og segjum hvað er hægt áður en nokkru er breytt.
Hvað ef forritið er týnt?
Stundum má lesa það út úr iðntölvunni sjálfri. Ef ekki er virkni kerfisins skoðuð og skráð, og svo ákveðið hvort forritið er skrifað aftur eða stýringin endurnýjuð.
Hvað fæ ég afhent?
Forritið, rásateikningar af skápnum, lista yfir inn- og útmerki og lýsingu á virkni. Þannig getur annar tekið við kerfinu síðar.
Er hægt að stýra álagi með iðntölvu?
Já. Iðntölva getur takmarkað eða fært til notkun, til dæmis hleðslu, hita eða dælur, svo heildarálagið fari ekki yfir það sem heimtaugin ræður við. Sjá líka uppsetningu hleðslustöðva.
Tengd þjónusta
Uppsetning hleðslustöðva
Heimili, húsfélög og fyrirtæki: tafla, lekaliði, álagsstýring og mæling í lokin.
Nánar →Úttekt á hleðslustöðvum
Sjónskoðun og mælingar á hleðslustöð og lögn að henni, með PDF-skýrslu um niðurstöður.
Nánar →Töfluskipti og endurnýjun raflagna
Eldri töflur og lagnir skoðaðar, mældar og endurnýjaðar, með lekaliðum og jarðtengingu í lagi.
Nánar →Brunaþéttingar
Gegnumtök raflagna milli brunahólfa þétt með vottuðum kerfum og skráð með myndum.
Nánar →Lokaúttektir
Skoðun og mælingar á nýjum og breyttum neysluveitum áður en þær eru teknar í notkun, með skýrslu.
Nánar →Raflagnahönnun og rásateikningar
Raflagnateikningar, töfluteikningar og greinaskýringar fyrir nýbyggingar og breytingar.
Nánar →Segðu okkur frá stýringunni
Hvað á kerfið að gera, eða hvað er að? Myndir af stjórnskápnum og búnaðinum hjálpa.
Fasvik ehf. · Hafnarfjörður · allt höfuðborgarsvæðið