Fasvik – forsíða

← Öll þjónusta

Löggiltur rafverktaki í Hafnarfirði

Lokaúttektir nýrra og breyttra neysluveitna

Þegar raflögn er ný eða henni hefur verið breytt er hún skoðuð og mæld áður en hún er tekin í notkun. Niðurstöðurnar eru skráðar í skýrslu sem fylgir lögninni.

Senda fyrirspurn Algengar spurningar
Rafvirki mælir spennu á tengiklemmum í stjórntöflu með fjölmæli

Hvað er lokaúttekt?

Síðasta skrefið áður en ný eða breytt neysluveita er tekin í notkun. Lögnin er skoðuð og mæld og það skráð sem fannst. Skýrslan sýnir hvernig lögnin var við afhendingu.

Öryggi

Mælingar staðfesta að einangrun, varnarleiðarar og varnarbúnaður séu í lagi.

Skráð ástand

Skýrslan sýnir hvernig lögnin var við afhendingu, með mælingum og myndum.

Athugasemdir flokkaðar

Það sem þarf að laga er skráð og flokkað, svo ljóst sé hvað er brýnt.

Gögn fyrir tilkynningu

Gildin úr mælingunum nýtast þegar neysluveitan er tilkynnt til HMS.

Hvað er skoðað og mælt?

Fyrst er allt skoðað með berum augum. Síðan er mælt, fyrst án spennu og svo með spennu.

Skoðað

  • Sjónskoðun: töflur, strengir, tenglar, rofar og búnaður, festingar og frágangur.
  • Varnarbúnaður: yfirstraumsvarnir og lekaliðar af réttri gerð og stærð.
  • Merkingar: greinar merktar í töflu og greinaskýring í samræmi við lögnina.
  • Tengingar: átak á klemmum í töflum.
  • Jarðtenging: varnarleiðarar og spennujöfnun.

Mælt

  • Einangrunarviðnám: er einangrun leiðaranna heil og án leka?
  • Samfelldni varnarleiðara: er varnarleiðarinn heill alla leið, líka í spennujöfnun?
  • Hringrásarviðnám (Zs): nógu lágt til að varnarbúnaður leysi út ef bilun verður.
  • Lekaliðar: útleysitími og útleysistraumur.
  • Spenna og fasaröð: á hverjum fasa.
  • Jarðskautsviðnám: þar sem það á við, til dæmis í TT-kerfum.

Mælitæki: Fluke 1673 FC fjölnotaprófari fyrir raflagnir (kvarðaður). Vísað er í ÍST HB 200:2024 og reglugerð um raforkuvirki nr. 678/2009.

Skýrslan sem þú færð

Skýrsla á PDF-formi með niðurstöðu á fyrstu síðu og öllu sem stendur að baki henni.

Í skýrslunni

  • Niðurstaða á fyrstu síðu
  • Mælingar með gildi, viðmiði og mati
  • Sjónskoðun, atriði fyrir atriði
  • Athugasemdir í þremur flokkum
  • Mælitæki með raðnúmeri og kvörðun
  • Ljósmyndir með myndatexta
  • Undirskrift löggilts rafverktaka

Ef eitthvað finnst

Það er skráð og flokkað samkvæmt ÖH-01 frá HMS. Ef ekkert finnst stendur „án athugasemda“.

  • 1. flokkur, lagfæring: lagfæring án ákveðinna tímamarka.
  • 2. flokkur, frestur: lagfæra innan þriggja mánaða eða leggja fram úrbótaáætlun.
  • 3. flokkur, alvarleg: tafarlausar úrbætur. Lögnin er ekki tekin í notkun fyrr en lagað er og mælt aftur.

Eftir úrbætur endurtökum við þær mælingar sem málið varðar og uppfærum skýrsluna.

Tilkynning nýrrar neysluveitu

Nýjar og breyttar neysluveitur eru tilkynntar til HMS á eyðublöðum stofnunarinnar. Mælingarnar í lokaúttektinni eru þau gildi sem tilkynningin byggir á, og skýrslan geymir þau á einum stað.

Hvernig tilkynningunni er háttað fer eftir verkinu. Við förum yfir það með þér í upphafi.

Fyrir hverja?

Lokaúttekt á við þar sem raflögn er ný eða henni hefur verið breytt, stór eða lítil.

Verktakar

  • Fyrir afhendingu: skoðun og mælingar áður en verk er afhent.
  • Skýrsla: fylgir verkinu, með mælingum og myndum.
  • Athugasemdir: skráðar svo ljóst sé hvað þarf að klára.

Húseigendur og húsfélög

  • Eftir breytingar: viðbyggingu, töfluskipti eða endurnýjun lagna.
  • Staðfesting: á að lögnin hafi verið skoðuð og mæld.
  • Skýr gögn: ef spurt er um ábyrgð eða tryggingar.

Fyrirtæki

  • Atvinnuhúsnæði: eftir breytingar á lögnum, töflum eða búnaði.
  • Skjalfest ástand: við afhendingu.

Er hleðslustöð hluti af verkinu? Sjá úttekt á hleðslustöðvum. Þarf að endurnýja töflu eða lagnir fyrst? Sjá töfluskipti og endurnýjun raflagna.

Ferlið skref fyrir skref

  1. Bókun

    Þú hefur samband og segir okkur frá verkinu: hvað er nýtt eða breytt og hvenær það er tilbúið.

  2. Skoðun og mælingar

    Við skoðum lögnina og mælum, fyrst án spennu og svo með spennu.

  3. Skýrsla

    Þú færð skýrslu á PDF með niðurstöðum, mælingum og myndum.

  4. Lagfæringar, ef þarf

    Ef eitthvað stenst ekki segjum við hvað þarf að laga og mælum aftur eftir úrbætur.

Gott að hafa við höndina: raflagnateikningar og greinaskýringar, ef þær eru til. Vantar teikningar? Sjá raflagnahönnun og rásateikningar.

Algengar spurningar

Hvenær er lokaúttekt gerð?

Eftir að ný raflögn er lögð eða eldri lögn breytt, áður en hún er tekin í notkun. Til dæmis eftir nýbyggingu, viðbyggingu, töfluskipti eða endurnýjun lagna.

Hvað er mælt?

Einangrunarviðnám, samfelldni varnarleiðara, hringrásarviðnám (Zs), lekaliðar, spenna og fasaröð. Þar sem það á við líka jarðskautsviðnám.

Hvað fæ ég í hendur?

Skýrslu á PDF með niðurstöðu, mælingum, sjónskoðun, athugasemdum og myndum.

Hvað ef eitthvað stenst ekki?

Það er skráð og flokkað eftir því hversu brýnt það er. Eftir úrbætur endurtökum við þær mælingar sem málið varðar og uppfærum skýrsluna.

Hvernig tengist þetta tilkynningu til HMS?

Nýjar og breyttar neysluveitur eru tilkynntar til HMS. Mælingarnar í skýrslunni eru þau gildi sem tilkynningin byggir á. Hvernig tilkynningunni er háttað í þínu verki förum við yfir í upphafi.

Tengd þjónusta

Uppsetning hleðslustöðva

Heimili, húsfélög og fyrirtæki: tafla, lekaliði, álagsstýring og mæling í lokin.

Nánar →

Úttekt á hleðslustöðvum

Sjónskoðun og mælingar á hleðslustöð og lögn að henni, með PDF-skýrslu um niðurstöður.

Nánar →

Töfluskipti og endurnýjun raflagna

Eldri töflur og lagnir skoðaðar, mældar og endurnýjaðar, með lekaliðum og jarðtengingu í lagi.

Nánar →

Brunaþéttingar

Gegnumtök raflagna milli brunahólfa þétt með vottuðum kerfum og skráð með myndum.

Nánar →

Raflagnahönnun og rásateikningar

Raflagnateikningar, töfluteikningar og greinaskýringar fyrir nýbyggingar og breytingar.

Nánar →

Iðntölvur og stýringar

Forritun og uppsetning iðnstýringa (PLC) fyrir dælur, loftræsingu, lýsingu og vélbúnað, með skjölun.

Nánar →

Pantaðu lokaúttekt

Segðu okkur hvar verkið er, hvað er nýtt eða breytt og hvenær það er tilbúið til úttektar.

Sími
Hilmir 779 6121
Sófus 778 7712
Karl 773 8818

Fasvik ehf. · Hafnarfjörður · allt höfuðborgarsvæðið