Fasvik – forsíða

← Uppsetning hleðslustöðva

Fyrir stjórnir húsfélaga · 8 spurningar

Hleðslustöðvar fyrir húsfélag – hvað er hægt?

Svarið átta stuttum spurningum um húsið, stæðin og heimtaugina. Þið fáið yfirlit: hvaða lausn virðist henta, gróft viðmið um fjölda stöðva, hvað húsfélagið þarf að ákveða og hvað Fasvik gerir. Rafvirki mælir álagið á staðnum áður en nokkuð er ákveðið.

Ekkert er sent nema þið veljið „Senda fyrirspurn“ í lokin, og þá aðeins svörin.

Spurningar

Gátlisti: farið yfir spurningarnar og sendið okkur svörin í fyrirspurn, eða hafið þau við höndina þegar við tölum saman.

Spurning 1 af 8 Hve margar íbúðir eru í húsinu?

Spurning 2 af 8 Hve mörg bílastæði fylgja húsinu?

Spurning 3 af 8 Hvar eru bílastæðin?

Spurning 4 af 8 Hve stór er heimtaug hússins?

Heimtaugin er strengurinn frá veitunni inn í húsið. Stærðin í amperum (A) stendur oft á reikningi veitunnar eða á aðalvörninni í aðaltöflunni. „Veit ekki“ er gott svar: rafvirkinn finnur þetta.

Spurning 5 af 8 Hvar er aðaltaflan miðað við stæðin?

Aðaltaflan er taflan sem heimtaugin kemur inn í, oft í tæknirými eða við mælana.

Spurning 6 af 8 Eru hleðslustöðvar þegar komnar?

Spurning 7 af 8 Hvernig á að skipta kostnaði?

Bæði stofnkostnaði og rafmagninu sem hver bíll notar. Ef það er óákveðið er „Veit ekki enn“ gott svar.

Spurning 8 af 8 Hvað vill húsfélagið gera?

Senda fyrirspurn

Tvær algengar leiðir

Hvor leiðin hentar ræðst af stærð hússins, heimtauginni, fjarlægð frá töflu að stæðum og því hvernig húsfélagið vill skipta kostnaði.

Einstaklingsstöðvar á eigin grein

Hver stöð er tengd á sína eigin grein frá töflu eða mæli íbúðarinnar, og notkunin fer á rafmagnsreikning íbúðarinnar.

  • Hentar: fáum stöðvum þegar stutt er frá töflunum að stæðunum.
  • Hafa í huga: hver stöð þarf sinn eigin streng, og án sameiginlegrar álagsstýringar ræður heimtaugin fjöldanum.

Sameiginlegt kerfi með álagsstýringu

Stöðvarnar tengjast sameiginlegri töflu fyrir stæðin. Álagsstýring skiptir lausu afli á milli bílanna sem eru að hlaða, og mæling á hverri stöð sýnir hvað hver notar.

  • Hentar: flestum fjölbýlishúsum, sérstaklega ef margir vilja hlaða eða bæta við stöðvum síðar.
  • Hafa í huga: húsfélagið ákveður uppgjör notkunar og hver sér um kerfið.

Nánar um húsfélög og fjölbýli →

Gott að hafa við höndina

  • Mynd af aðaltöflunni, allri, þannig að merkingar sjáist. Ekki taka lokið af.
  • Upplýsingar um heimtaugina af reikningi veitunnar (stærð í amperum).
  • Teikning eða einföld skissa af bílastæðunum og hvar aðaltaflan er.

Hvernig ferlið gengur fyrir sig

  1. Skoðun. Við skoðum aðaltöfluna, heimtaugina, lagnaleiðir og stæðin og mælum álagið.
  2. Tillaga. Tillaga að lausn og áföngum sem stjórnin getur lagt fyrir húsfund.
  3. Húsfundur. Húsfélagið ákveður lausn, kostnaðarskiptingu og eignarhald á búnaðinum.
  4. Uppsetning. Lagnir, töflubreytingar, stöðvar og álagsstýring. Ef stækka þarf heimtaugina sendum við beiðni til veitunnar.
  5. Úttekt og tilkynning. Hver stöð er mæld áður en hún er tekin í notkun, skrifleg úttektarskýrsla fylgir og við tilkynnum verkið til HMS.

Nánar um úttekt á hleðslustöðvum →

Viljið þið frekar spyrja beint?

Segið okkur hve margar íbúðir og stæði eru í húsinu og hvort einhverjar stöðvar eru komnar. Myndir af aðaltöflunni hjálpa.

Sími
Hilmir 779 6121
Sófus 778 7712
Karl 773 8818

Fasvik ehf. · Hafnarfjörður · allt höfuðborgarsvæðið