Hleðslustöð heima – hvað þarf?
Svaraðu sjö stuttum spurningum og fáðu yfirlit: líklega stærð stöðvar, hvað er athugað í töflunni og hvað er gott að hafa við höndina. Þetta er gróft mat. Endanlegt val ræðst af skoðun á staðnum.
Ekkert er sent nema þú veljir „Senda fyrirspurn“ í lokin, og þá aðeins svörin.
Spurningar
Gátlisti: farðu yfir spurningarnar og sendu okkur svörin í fyrirspurn, eða hafðu þau við höndina þegar við tölum saman.
Niðurstaða: hvað þarf líklega
Þetta er gróft mat út frá svörunum þínum, ekki tilboð eða loforð. Rafvirki staðfestir stærð stöðvar, strengs og varnarbúnaðar eftir skoðun á staðnum.
Viltu að við skoðum þetta?
Svörin fara sjálfkrafa í lýsinguna í fyrirspurnarforminu. Þú bætir við nafni og síma, og myndum ef þú átt þær.
Senda fyrirspurnHvaða stærð af stöð?
Fjórar algengar stærðir. Stöðin hleður aldrei hraðar en bíllinn tekur við, og heimtaugin þarf að ráða við hana ofan á aðra notkun.
3,7 kW
1 fasi · 16 A
Tengiltvinnbílar og stuttur daglegur akstur. Leggur minnst á heimtaugina.
7,4 kW
1 fasi · 32 A
Rafbíll og lengri akstur á 1 fasa heimtaug. Tekur mikið af heimtauginni, svo álagsstýring er oft ráðlögð.
11 kW
3 fasar · 16 A á fasa
Algengasta stöðin á 3 fasa heimtaug. Margir rafbílar hlaða mest 11 kW á riðstraumi.
22 kW
3 fasar · 32 A á fasa
Sjaldan þörf heima. Á helst við fyrirtæki og bíla sem styðja 22 kW, ef heimtaugin leyfir.
Það sem er athugað
Í töflunni
- Laus grein: stöðin fær sína eigin grein.
- Lekaliði: gerð B, eða gerð A-EV sem nemur sjálf 6 mA jafnstraum. Gerð A dugar þegar sú vörn er innbyggð í stöðina.
- Varrofi: valinn fyrir straum stöðvarinnar og strenginn.
- Pláss: fyrir varrofa og lekaliða, eða hvort stækka þurfi töfluna.
- Jarðtenging: jarðtenging og varnarleiðari í lagi.
- Heimtaug: hvort hún ráði við stöðina ofan á aðra notkun.
Fjölbýli og húsfélög
Á sameiginlegu bílastæði er oftast best að húsfélagið velji sameiginlega lausn með álagsstýringu, í stað þess að hver íbúð leggi sína lögn. Ræddu við húsfélagið áður en lengra er haldið.
Nánar um húsfélög og fjölbýli →
Eftir uppsetningu
Stöðin er mæld áður en hún er tekin í notkun. Skrifleg skýrsla er gerð eins og í úttekt á hleðslustöðvum ef þú þarft hana.
Gott að hafa við höndina
- Mynd af rafmagnstöflunni, allri, þannig að merkingar á rofum sjáist. Ekki taka lokið af.
- Mynd af stæðinu og leiðinni sem strengurinn gæti farið.
- Upplýsingar um heimtaug og mæli: mynd af mælinum og aðalvörninni.
- Gerð bílsins, og stöðvarinnar ef hún er þegar keypt.
Viltu frekar spyrja beint?
Segðu okkur hvar stöðin á að vera og hvort hún er þegar keypt. Myndir af töflunni hjálpa.
Fasvik ehf. · Hafnarfjörður · allt höfuðborgarsvæðið